Alma íbúðafélag hf.: Stækkun á skuldabréfaflokknum AL101028
Alma íbúðafélag hf. hefur lokið við stækkun á skuldabréfaflokknum AL101028 sem gefinn er út undir útgáfuramma félagsins.
Skuldabréfaflokkurinn AL101028 er óverðtryggður og ber fljótandi vexti tengdum 1 mánaða REIBOR vöxtum að viðbættu 1,30% vaxtaálagi. Lokagjalddagi flokksins er 10. október 2028. Skuldabréfaflokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi.
Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.500 m.kr. á pari.
Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er fimmtudagurinn 29. janúar 2026.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingólfur Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ölmu íbúðafélags hf. - ingolfur@al.is.

© 2026 GlobeNewswire, Inc. All Rights Reserved.












